Magnað

Tuesday, June 12, 2007

Hristur kokteill

Já það er mikið af skrítnu fólki hér á Krók. Muna ekki allir eftir kerlingunni á barnum sem hristist öll þegar hún átti að gera hristan koktail? Þið sjáið fyrir ykkur gamla krumpaða kerlingu sem heldur á hristiglasi og allt hrististist nema glasið var grafkjurt... Sumir pöntuðu sér "hristan" kokteil bara til að sjá þetta. Hún var rekin nokkrum sinnum en tók aldrei mark á því og mætti alltaf aftur. Um helgina var ég að vinna í búðinni í sumarblómunum þegar hún parkerar við hliðið inn í garð hjá mér (aðalgötumegin). Situr í nokkrar mín þar og glápir inn í garð á sumarblómahrúguna sem þar er til sölu. Svo keyrir hún aðeins áfram - leggur bílnum og fer í bakaríið. Keyrir svo í burtu. Okí.. pínu skrítin hugsa ég og rölti inn í garð aftur... nema hvað - kerlingin er búin að keyra hálfa leið inn í garð hinu megin frá!! Við erum sko búin að rífa grindverkið þar í burtu (var ónýtt) og ætlum að setja nýtt... Ef það væri ekki stórt grenitré fyrir hefði hún örugglega farið á rúntinn í garðinum mínum!! Ok hann er kannski ekki alveg svo stór. Hakan datt amk niður að nafla þegar ég sá hana - og hún sá mig og haggaðist ekki. Var bara þarna í bílnum sem var í garðinum í smá tíma svo bara fór hún án þess að tala nokkuð við mig.......... WHAT??