..
Helgin framundan - næææsss. Fer í matarklúbb í kvöld, sem verður bara gaman og svo uppskeruhátíð á morgun með Gaua mínum, líklega ekki eins gaman. Hann vill eeendilega skella sér á ball með Pöpunum... ég er ekki alveg ennþá í sama gír. Neeenni ekki eins og er. Kemur í ljós.
Í gærkvöldi var ég með fyrstu "fyrirtækja" opnunina í búðinni minni. Er að bjóða stæðstu og helstu fyrirtækjum þe starfsmönnum að koma ákveðið kvöld og kaupa á afslætti. Þetta virkað mjög vel í gær þó að það hafi ekki margir komið þá var salan þennan klukkutíma meira en síðustu vikuna!!!
og já ómægod. Hann Gaui minn. stun. Hann fór í Kringluna í gær - af því að hann var að fara út 2 kvöld í röð og laaaangaði svo í ný föt - og svo var líka Kringlukast og alls konar tilboð. Svo ég sagði honum að skella sér. Nema hvað.... hann keypti sér SAND jakkaföt sem voru ekki á tilboði. SVITN.. ég minnti hann nú á að hann væri í skóla. Svo hann fær mjög smáa jólagjöf þetta árið. Verð líklega að hætta við það sem ég var búin að láta mér detta í hug.
Góða helgi pípol :)

<< Home