Magnað

Tuesday, October 30, 2007

Hvernig er þetta með unglingana í dag ??

Fékk þetta í tölvupósti..

Þessir eru góðir. Svona svipaðir og greinin sem ég las um daginn um konuna sem ætlaði að kaupa gellur í kvöldmatinn. Ungu dömurnar í afgreiðslunni könnuðust ekkert við gellur og töluðu við yfirmanninn sem sagður var um tvítugt. Hann benti konunni á að ungu stúlkurnar hjá honum væru sko ekki kallaðar gellur og hún skyldi ekki vera með neinn dónaskap! Hún keypti barafiskibollur í dós í kvöldmatinn.

Systir mín var að segja mér frá því að samstarfsfélagi hennar fór í Rúmfatalagerinn til að kaupa herðatré nema hvað hún finnur þau ekki og spyr einhvern unglingsstrák hvar herðatrén séu geymd?
Strákurinn gjörsamlega tómur á svipinn: "Það er búið að pakka niður sumarvörunum"
Vá konan bara horfði á hann hvort hann væri ekki að grínast og fór svo að lýsa því fyrir honum hvað herðatré væri :"Þetta er notað til að hengja föt á og er með svona krók" Strákurinn: Neiiii held það sé ekki til" ekki hugmynd um hvað herðatré væri!!!

Ekki búið, þá fór önnur kona í vinnunni að segja frá því þegar hún fór í Bónus um daginn og fór á kassann með einhverjar 2 vörur og sagði við kassastarfsmannin (sem var líka unglingsstrákur) :"Ég ætla að fá hvoru tveggja." Strákurinn bara horfði á hana: "Hvað er hvoru tveggja?" Þá galaði starfsmaðurinn á næsta kassa (nota bene líka unglingsstrákur):"Hey ég LENTI í þessu um daginn, þetta þýðir hún ætlar að fá þett bæði!!"