Magnað

Wednesday, December 05, 2007

Jólasveinninn er ekki til..

Þar kom að því að barnið fékk að heyra sannleikann. Hún er mikið búin að heyra í skólanum að þessi og hinn hafi verið að leika jólasvein og að þeir séu ekki til á alvörunni. Við spurðum hvort hún vildi sannleikann og að þeir sem ekki trúa á jólasveininn fá ekki í skóinn. Smá hik kom á mína.. En pabbi hennar er allt of góður og sagði henni sannleikann OG að hún fengi í skóinn þetta árið....
Sömu sögu er að segja með tannálfinn. Hann er ekki til í alvörunni. Það sem fór helst í Alexöndru (áður en hún fékk að vita sannleikann) var hvernig í veröldinni þetta lið kæmist inn þegar gluggar væru lokaðir og hurðir læstar. Mín var sko ekki alveg sátt við að einhver læðist upp að henni um miðjar nætur. Lái henni hver sem vill! Tannálfurinn hafði alltaf gefið henni 100 krónur fyrir tönnina EN ein vinkona í bekknum fékk alltaf 500 krónur og var farið að heyrast: "AFTUR BARA HUNDRAÐKALL!!" Vanþakklát.. ekki fékk ég svo mikið sem eina krónu!! Svo þegar sannleikurinn var kominn í ljós sagði hún: "nú skil ég af hverju ég fékk alltaf bara hundrað en Berglind fimmhundruð. Þið tímduð ekki að gefa mér meir en hundrað!!" Sweet

Við Gaui vorum að kaupa okkur sjónvarp áðan - reyndar 2 stykki. 1 37" LCD Philips og 1 15" LCD Enox með dvd spilara fyrir Alexöndru (hún fær það í jólagjöf) Þá er hægt að tengja tölvuna við það og henda hlunknum tölvuskjánum hennar sem tekur dálítið mikið pláss og tengja Playstation við sjónvarpið og krakkinn getur þá bara verið inni í herbergi. Reyndar þarf ég ennþá ekki að hafa áhyggjur af því að hún sé lengi í tölvunni eða að horfa á sjónvarpið. Það er eiginlega meira þannig að ég spyr hvort hún vilji ekki amk klára myndina sem hún var að horfa á. Svo keyptum við líka eitthvað heimabíó... Nú vantar bara sófasettið og smá punt þá er stofan orðin góð - og kannski eitthvað í staðin fyrir rússann???