Magnað

Thursday, January 03, 2008

Gleðilegt nýtt ár

Ég finn það á mér að árið 2008 verður mjög skemmtilegt ;)
Það kannski byrjaði ekki mjög skemmtilega fyrir Öllu vinkonu þar sem henni tókst að fá flugeld í fótinn!! Þó stóð hún næstum því inni og hvergi nálægt skotsvæði. Bara hún gæti þetta. En hún var flutt á Akureyri í aðgerð og liggur nú þar með tærnar upp í loft og með holu í fætinum - já holu. Það lítur samt nokkuð vel út og virðast engar taugar hafa skaddast.
Litla barnið mitt verður 8 ára eftir 4 daga. Hún er eiginlega ekki lítil lengur. Hún er að ná mér!! Reyndar er ég oft sögð lítli nema einn dag í sumar þegar spurt var um þessa háu ljóshærðu. Fjölskylda mín er enn í kasti yfir þessu. Skil ekki af hverju?

Mikið væri ég til í vinkonuhitting í Rvík seinna í janúar.. langar svo til að sjá litlu Rebekku og litlu Önnu Siggu.

Well - best að reyna að finna vinnugírinn aftur.