Magnað

Tuesday, January 15, 2008

Janúar eeeeeer svo lengi að líða...

Mér finnst það amk. Gaui í London í 10 daga og ég í frostinu, í vinnunni og biðinni. Bíð eftir að það komi 24. janúar svo ég geti farið suður til hans. Það verður nú ýmislegt annað gert í þeirri ferð verður vinkonu hittingur með 2 nýjum meðlimum :)
Svo ætla ég að skunda í klippingu þar sem toppurinn er kominn niður á nef aðeins í vinnuna. Kannski ætlað ég að skoða nýjan bíl. Við erum að velta fyrir okkur að fara að endurnýja á árinu. Ekkert samt sem liggur á. Er bara að skoða hvað er í boð fyrir utan þessa 200 Range Rovera sem eru ekki á þessu verðbili sem ég ræð við. Það væri voða gott að geta bara keypt þann bíl sem mig langar í - án þess að velta mikið fyrir sér hvað hann kostar. Fékk bækling um daginn með Skoda jeppa, nokkuð töff en er ekki til sjálfskiptur. Hvernig bíl á maður að fá sér, eða kannski mikilvægara hvaða bíl á maður ekki að fá sér?