Jæja
Þá er komið að því. Við Alexandra leggjum af stað suður á eftir. Alexandra er búin að brosa í 2 daga við tilhugsunina að hitta pabba!! Reyndar fórum við í tónlistarskólann í gær - hún er búin að suða ansi lengi yfir því að hana langi til að æfa á eitthvað hljóðfæri. Þverflautan varð fyrir valinu, amk til að byrja með. Ég ætla nú ekki að bíða eftir því að hún verði einhver snillingur .... sjáum til hvort hún hafi þolinmæði til að klára önnina..

<< Home