Magnað

Wednesday, February 06, 2008

Ólétt...


Já nú er það ekki lengu leyndó!!! Komin 3 mánuði og geng með eineggja tvíbura! Hefði aaaaaaldrei giskað á þetta. Þannig að nú verð ég eins og Maja og Mæja - blogga bara um óléttu. Jesús hvað janúar var lengi að líða.. svooo þreytt og svoooo óglatt. Sofnaði nokkrum sinnum í vinnunni og gerði varla neitt heima hjá mér. Greyið Alexandra átti ekki alltaf hreinar buxur og svo spurði hún einn daginn: "Mamma af hverju eldum við aldrei kvöldmat" Hvað átti ég að gera ... "af því að þá gubba ég ef það verður ekki liðið yfir mig af þreytu fyrst. Uuuu nei þetta var leyndó svo ég skuttlaðist stundum heim til Gunna bró og sendi hana í mat á meðan ég lá í sófanum. Janúar var ekki skemmtilegur. En nú eru skemmtilegri tímar fram undan og vááá hvað ég hugsa mikið ...... nenni ekki meiru í dag.