Afmælið
Litlan mín átti afmæli á laugardaginn. Hún er orðin 6 ára!! dios mio. Hún vaknaði agalega spennt um hálf níu. Þá fékk hún fyrsta pakkan...

Upp kom þessi æðislega góða flíspeysa sem hún er búin að vera í nánast síðan...

Að sjálfsögðu var haldin heljarinar afmælisveisla í 2 hollum. Í fyrra hollinu voru leikskólafélagar - reyndar nokkur í 1. bekk núna og nokkrar frænkur. í seinna hollinu voru ömmur, afar, Þröstur bróðir Gaua og matarklúbburinn (3 frændsystkini + börn og svo Gunni og famelí). Maður var nú pínu feymin þegar verið var að syngja afmælissönginn..

og svo við mæðgur - ég var að syngja afmælissönginn..

Mín var rosalega ánægð með daginn enda loksins orðin 6.. búin að segja það síðan í nóvember að hún sé eiginlega orðin 6 ;)

<< Home