"þú verður að senda þetta annars......"
Hvað finnst ykkur um svona "þú verður að senda þetta því það táknar að þú hugsir um þá" pósta.........?
Amk mér finnst þetta oft ÖMURLEGA væmið og leiðinlegt - sérstaklega þegar það segir "þú verður að senda þetta innan x mín eftir að þú lest þetta annars you will die/7 years of bad luck/loos all your money ......" Þá fer mín í mótmælagírinn og sendi ekki neitt.
Á tímabili var ég alveg að gubba yfir þessum engla póstum og endalaust væmna dótinu "A True Friend Takes Interest in Understanding What You're All About......" Ok það er ýmislegt satt í þessu og svona en KOMMON það er mánudagsmorgun!!
Ég er meira fyrir "birnina þrjá og PMS mömmuna" brandara.
Sorry - kannski er ég eitthvað PMS sjálf í augnablikinu...datt í hug það sem Maja sendi mér með monday vs friday.. hahahah hann var góður!

<< Home