Magnað

Thursday, May 24, 2007

Ef ég ætti pening og sumarfrí..

...myndi ég fara til útlanda þar sem sumarið er komið - og komið í lengur en 5 mín eins og tíðkast hér på island. Er bara ekki að ná þessu veðri. Slyddu-snjókoma-en samt ekki frost-vindur-og stundum logn-veður er núna. Kæmi mér ekki á óvart þó það kæmi massa sólskin og þoka í dag...
Var með kveikt á sjónvarpinu í gær þegar lottó byrjar. Tvöfaldur 1.vinningur 27 milljónir. 'Vúhú og ég á miða' hugsaði ég... nú vinn ég!! Svo kom fyrsta talan 42 (var að elda í leiðinni) neiiii ég er örugglega ekki með svona háa tölu. Er sko í áskrift með 4 raðir og man ekki tölurnar. Svo í lokin var minnt á lottó á laugardaginn...ok ég vann ekki núna þar sem ég átti ekki miða í Víkingalottó. Dööö hvaða dagur er í dag?