Ekki sú auðveldasta!
Ég er greinilega ekki sú auðveldasta þegar kemur að óléttu. Fékk hringingu áðan frá sjúkarhúsinu á Króknum vegna niðurstöðu úr blóðprufu í janúar. Skjaldkirtillinn er eitthvað hyper.... svo ég verð að fara í blóðprufu á morgun. Hvað næst??
Ég fer semsagt á 4 vikna fresti í skoðun á Akureyri - verð lítið sem ekkert hér þar sem ég þyki frekar flókin.
1) Fékk svæsna meðgöngueitrun (eins og læknar orða það) þegar ég gekk með Alexöndru og var send í bráðakeisara mánuði fyrir tímann. Svo nú á að fylgjast mega vel með þrýstingnum osfrv..
2) Storknunarefnið er í lægri kantinum (samt ekki blæðari) og því ekki ráðlegt að ég fæði. Reyna á að koma því sem mest upp fyrir fæðingu, fyrst með sterum (þá blæs ég þokkalega út) og ef það gengur ekki þá með flögum beint í æð. Kemur allt í ljós síðar.
3) Tvíburar og eineggja í þokkabót. Svo nú þarf að fylgjast mjög náið með svona ef annar verður frekari en hinn og stelur öllum næringarefnum (hvaða næringarefnum segi ég nú bara enn ælandi á 14. viku......kommon!) Ég ældi aldrei með Alexöndru en þegar það eru tvíburar þá fær maður víst enn "skemmtilegri" megöngu einkenni. Ég er eins og fiskur í framan og buxurnar hanga á mér. Komin 3 mánuði og engin bumba sést á mér. Voða spennandi :(
4) svo bættist blessaði skjaldkirtillinn við í dag. Mér til mikillar gleði NOT. Ok ég er hyper.
Af þessu öllu tel ég afar hæpið að ég fái að vinna fram að fæðingu sem er áætluð í vikur 35-36 í síðasta lagi. 36 vikur eru 18. júlí. Mamma verður sjálfsagt búin að strappa mig niður einhversstaðar..
Svo finnst mér agalega gaman að fylgjast með þessu:
Þú ert nú komin á annan þriðjung meðgöngunnar sem margar konur segja besta hluta meðgöngunnar. Legið er nú á stærð við litla hunangsmelónu og þrýstir á öll líffæri neðst í kviðarholinu. Nú getur þú örugglega fundið legið u.þ.b. tvær fingurbreiddir fyrir ofan lífbeinið. Það er kannski auðveldast að finna það þegar þér er mál að pissa því þegar þvagblaðran er full, ýtir hún leginu upp á við (hef sko fundið það - sérstaklega á morgnanna). Kannski er það vegna þess að þú ert laus við ógleðina (NOT) að nú getur þú fengið löngun í undarlegustu fæðutegundir en það eru ekki allar konur sem upplifa breytingar á næringarvenjum (bíð spennt).
Tvíburarnir
Fóstrin eru nú u.þ.b. 100 mm á lengd frá höfði niður á rass og 100 grömm hvort. Tvíburarnir geta nú hreyft kjálkana og kyngt og sulla í legvatninu þó þú getir enn ekki fundið það. Sónarskoðun á strákafóstrum getur nú kannski sýnt pínulítinn tippaling. (fer í sónar 7. mars kannski maður sjái eitthvað þá?)
Fleiri og vonandi betri fréttir síðar :)

<< Home