Magnað

Friday, February 15, 2008

Skjaldkirtillinn

Jebbs hann er hyper - og ég með :(
Heyrði í lækni áðan og mælist hann 37,1 en eðlilegt er á bilinu ca9 - 23,4.
Hann vildi nú ekki segja hvað ætti að gera fyrr en hann talaði við innkirtlasérfræðing. Bíð bara geyspandi eftir hringingu.

En áfram fylgjumst við með:
15. vika = vika 14+0- 6 dagar
Þú
Þú hefur nú þyngst um 3-5 kíló (NÓP... bara búin að léttast, en einkenni ofstarfsemi kirtilsins eru að borða mikið sem ég hef ekki gert vegna ógleði og mikil brennsla sem hefur gerst) og á næstu fimm vikum munt þú þyngjast mikið (er að fara að kaupa vigt til að fylgjast með þessu). U.þ.b. ¼ af þyngdaraukningu á meðgöngu verður á milli 16. og 20. viku.
Ef þú hefur fætt áður, getur þú kannski byrjað að greina á milli fósturhreyfinga og þarmahreyfinga þinna. Legið er nú á stærð við handbolta og hjartað í þér slær 10 slögum oftar á mínútu vegna aukins blóðmagns (+ 10-20 vegna skjaldk). Þú ert kannski líka andstutt og getur ekki alltaf andað djúpt og þarft því stundum út til að fá ferskt loft. Þetta er alveg eðlilegt, svo lengi sem þetta lagast með ferska loftinu. Hormónabreytingar valda líka auknum hárvexti svo að sumar konur fá „yfirskegg“ (GLÆTAN!!) á meðgöngu. Hárið á höfðinu getur annað hvort orðið líflegra eða þynnra en hvortveggja breytist aftur í eðlilegt horf eftir fæðinguna.

Tvíburarnir
Fóstrin eru nú u.þ.b. 90-120 mm frá höfði niður á rass og 130 grömm hvort og þvermál höfuðs er um 3 sm. Litliheili og mæna eru mynduð. Þunnt lag af fíngerðum hárum (laguno) vex yfir allan líkamann og fóstrin æfa sig í að anda. Ytri kynfæri eru nú fullmótuð en það er ekki öruggt að hægt sé að greina kynið í sónar.