Að snerta bumbuna.
Hvað finnst ykkur um það þegar fólk þarf að koma við bumbuna á ykkur þegar þið eruð óléttar??? Sko mér er aaaallveg sama þegar það er einhver nákominn - EN þegar það er Sigga út í bæ sem ég þekki smá þá er mér ekki sama. Td er ég búin að fá eina svoleiðis (fyrir sko 2-3 vikum og þá var ekki ein einasta bumba sjáanleg og er varla enn!!) mér fannst það enn meira krípí en þegar bumban er orðin stór. Ég sjálf snerti aðeins þær bumbur sem mér er mikið annt um og alls ekki fyrr en þær eru orðnar að alvöru bumbu.
Það eru allir að eignast tvíbura.... "Jessica Alba og Cash hafa verið að endurskipuleggja allt á heimilinu, en fregnirnar um tvíbura verða nú til þess að allt verður tekið í gegn á ný" (bara eins og hjá mér LOL). Jennifer Lopes fæddi sína í nótt.
og svo vikulega framhaldssagan:
Þú
Fáum dylst nú að þú ert barnshafandi (það eru allir búnir að frétta þetta - þeir sem ekki vita það sjá það ekki belíf jú mí). Legið stækkar mikið og það veldur stingandi verkjum eftir hliðum legsins þegar böndin sem halda leginu á sínum stað, togna. (var einmitt að spá í þessum verkjum.. þetta er pínu vont. man ekki eftir þessu með Alexöndru) Þessir liðbandaverkir eru verstir frá 16. til 24. viku. Í þessari viku er legið þitt u.þ.b. fjórum sinnum stærra en það var fyrir þungunina og vex í takt við fóstrin. Fyrir meðgönguna vó það u.þ.b. 70 grömm en rétt fyrir fæðinguna vegur það um 1 kíló.
Fjölbyrjur (þetta er svoooo ljótt orð) geta fundið hreyfingar eins og kitl í maganum. Ekki vera hrædd þó að þú finnir ekki hreyfingar enn, þær koma innan fárra vikna. Frumbyrjur (ekki er þetta skárra!!) finna oftast fyrir hreyfingum í 20.viku en þær sem ganga með tvíbura finna gjarnan hreyfingar fyrr. (er aðeins farin að finna)
Tvíburarnir
Fóstrin eru nú u.þ.b. 120 mm eða 12 sm frá höfði niður á rass og u.þ.b. 14-16 sm frá höfði niður á hæl og vega hvort um sig u.þ.b. 150 grömm. Fóstrin hafa fengið neglur og augabrúnir, hjörtu þeirra slá 120-160 slög á mínútu og þvermál höfuðs er um 3,5 sm. Hendur og fætur eru orðnir langir og mjóir og vantar enn fitulag. Á þessu tímabili byrja að myndast einstaklingsbundin mynstur sem síðar verða fingraför barnanna. Fingraför eru fullkomlega einstaklingsbundin, líka þó um eineggja tvíbura sé að ræða. Þrátt fyrir að tvíburarnir hreyfi sig mikið eru hreyfingarnar ekki samhæfðar þar sem taugakerfi þeirra er enn að þroskast. Þau ýmist hvíla sig eða eru mjög virk og sumir halda því fram að þau finni fyrir því þegar þú strýkur á þér magann.

<< Home