3 búnar 2 eftir
Mæja átti strákinn sinn í gær - TIL HAMINGJU ;)
Þá er bara Maja og ég eftir. Æ vonandi þarf hún ekki að bíða svona eins og síðast - 12 dagar minnir mig. Ég reikna nú ekki með að þurfa að bíða neitt þannig. Fer að öllum líkindum í keisara og þá er allt ákveðið með einhverjum fyrirvara.
Heilsan er öll að koma til - orkan að koma aftur, lystin líka og ógleðin nánast alveg farin. Hef ekkert ælt síðan í síðustu viku. Ég fer í skoðun/sónar/blóðprufu á Akureyri á morgun. Hlakka þvílíkt til að fara í sónarinn.. er alltaf svo lengi ;) er semsagt með tvöfaldan tíma. Ég er líka búin að ákveða að Alexandra fær að koma með núna. Þetta verður örugglega stór upplifun fyrir hana!!
Vikan sem hefst á föstudaginn..
Ég: Legið er nú á stærð við litla vatnsmelónu og er vaxið upp úr mjaðmagrindinni. Liðböndin sem halda leginu á sínum stað teygjast og það getur valdið verkjum í nára þegar þú snýrð þér í rúminu eða stendur upp af stól (kannast við það). Það getur verið nokkuð vont en er bara merki um að þú þarft að taka það rólega. Ef þú ert með stíflað nef getur það verið vegna þess að slímhimnur eru dálítið bólgnar vegna hormónaáhrifa (kannast líka við það). Brjóstin undirbúa sig fyrir mjólkurframleiðslu þannig að mjólkurkirtlar þroskast fyrir tilstuðlan hormóna svo þeir verði tilbúnir til mjólkurframleiðslu þegar tvíburarnir fæðast (hef ekki trú á því...)
Ef þú hefur fætt áður, ertu kannski byrjuð að finna hreyfingar (já það er ótrúlega fyndið að svona agnarlítil kríli geti sparkað þarna inni þannig að ég finni fyrir því.... kannski eru þetta 2 fótboltastrákar???)
Tvíburarnir: Fóstrin eru nú u.þ.b. 13-15 sm frá höfði niður á rass og u.þ.b. 18 sm frá höfði niður á hæl og vega u.þ.b. 200-300 grömm hvort. Fætur þeirra eru nú um 2,5 sm. (fótboltafæturnir..) Nýru fóstranna eru nú starfandi og þarmar eru fullmótaðir. Á fingrum eru greinilegar neglur og naglbönd og sjá má línurnar í lófunum. Þau eru nú hulin fósturfitu sem verndar húð þeirra á meðgöngunni. Þau æfa vöðvana sína með því að sparka og hreyfa sig.

<< Home