Magnað

Friday, March 14, 2008

allt og ekkert

MAJA ég er að bíða eftir fréttum.....

Gaui er að koma norður í kvöld í 12 daga páskafrí! vúhú gott að fá kallinn heim;)
Ég er farin að stækka - það er komin smá bumba, ekki stór en samt bumba. Alexöndru finnst hún reyndar huge... Matarlystin er komin aftur svo nú fara hlutirnir að gerast. Finn mörgum sinnum á dag fyrir spörkum, það er bara sætt á meðan þau eru svona lítil og ekki farin að meiða. En miðað við 36 vikur þá er ég hálfnuð! Já tíminn líður hratt.


og hitt - kannski svolítið líka fyrir Gaua svon hann geti fylgst betur með..
ÉG: þyngist stöðugt og hefur bætt á þig 6-8 kílóum (ekki alveg...) í allt og byrjar kannski að óttast hvernig þetta endar allt saman (ómg byrjaði á því á 8. viku!!). Borðaðu þegar þú ert svöng, fjölbreyttan hollan mat. Þú brennir meiru nú en í byrjun meðgöngu þrátt fyrir að þú hreyfir þig minna. Taktu því rólega og sýndu bumbuna stolt. Hitakóf eru algeng vegna hormónaáhrifa og aukablóðmagns þannig að svöl herbergi og bómullarfatnaður eru eftirsóknarverð. Þú getur líka upplifað húðbreytingar.
Tvíburarnir: Fóstrin eru nú 15 sm frá höfði niður á rass og það er u.þ.b. helmingurinn af lengd þeirra við fæðingu. Frá höfði niður á hæl mælast þau um 20 sm og vega 300-320 grömm hvort. Fóstrin heyra nú og greina hljóð og kannski langar ykkur framvegis að syngja vögguvísu fyrir þau á kvöldin? (jeeeee RIGHT sorry tvíbs ég er ekki þessi crazy mamma)