Magnað

Wednesday, March 12, 2008

Hress

Ég er fullviss - ógleðin er farin vúhúú!
Fór á Akureyri í síðustu viku í sónar. Það er greinilega mikið fjör hjá tvíburunum en læknirinn þurfti stundum að elta með sónartækið - var td í eitt skipti að skoða hjartað og það allt saman en svo allt í einu tók barnið á rás og það sást bara í iljarnar og svo horfið... En það lítur allt vel út þar - skjaldkirtillinn er að hægja á sér og reyndar duttu flögurnar niður líka sem þær áttu ekki að gera. Well það getur ekki allt verið 100% Læknirinn spurði hvernig gengi í mæðraskoðuninni.... ó átti ég að vera í henni líka??? Já *hóst* átti víst að fara þegar það voru komnar 12 vikur. En fór í gær 17 og hálf vika - betra seint en aldrei....
En þar kom allt vel út með börnin. Ég þarf víst að borða meira og passa upp á hvíld. Á eiginlega að borða á 2-3 tíma fresti og vel, nýmjólk 26% ost og svo framvegis. Ég er að reyna - ég held að það sé ekkert mikið auðveldara að borða meira þegar manni langar ekki í meira en að borða minna þegar manni langar í meira. Það þarf amk að vera verulega gott. Ég á helst fljótlega að fara að minnka vinnuna - er að vinna í því. Svo sagði hún að ég ætti að búast við því að vinna ekki meira eftir 28 vikur!! OKí... eins gott að það er að koma sumar þá og eins gott að Gaui verður kominn norður. Stefni á að fara í ræktina og gönguferðir og fleira.. Alexandra verður búin í skólanum um það bil þá svo þetta sleppur mjög vel tímanlega.
En það er svona að vera með öll þessi vandamál mín, sögu af fyrirburafæðingu og svo eineggja tvíbura ofan á það. Ég ræð engu!