Magnað

Thursday, March 27, 2008

Og það eru ..

Þær eru fullkomnar ;) amk samkvæmt skoðun í gær og stærð munar aðeins 1 degi á mínum útreikningin og stærð þeirra - já þetta eru STELPUR... amk sást ekkert dingaling.

Gaui og Sandra komu með í sónarinn á Akureyri í gær. Það er mikið fjör og mikil hreyfing og er önnur td núna á fullu á meðan ég skrifa. Þær liggja þannig að hausarnir eru eru báðir hægramegin og fætur vinstramegin. A tvíburi er undir og B yfir.. Þetta er frekar fyndið að sjá þetta í sónar.

Ég er að fara á Egilsstaði á eftir - day jobbið. Spurði yfirmanni áðan hvenær við leggjum af stað. Eftir 13 og fyrir 19 var svarið... þessir karlmenn sem ég vinn með eru einstaklega óskipulagðir og vonlaust fyrir þá að ákveða svona með meiri fyrirvara en 3 klst.

21. vika = vika 20+0- 6 dagar
Þú: Legið nær nú upp fyrir nafla og lengdin milli lífbeins. Kviðurinn stækkar dag frá degi vegna hinna hratt vaxandi tvíbura og það getur valdið kláða í húðina á maganum (já er búin að klóra og klóra...) Nábítur og brjóstsviði er eðlilegur (en ekki spennandi) og margar byrja að hrjóta vegna stíflaðs nefs af völdum bólgu í slímhúð. Þetta er m.a. vegna hormónabreytinga á meðgöngunni. Þumalfingursregla segir að eftir hálfnaða meðgöngu hafi konan fengið helming þyngdaraukningarinnar á meðgöngunni. Kílóin koma þó oft í slumpum. Mundu að hvíla þig vel eftir vinnu, leggstu í sófann með hærra undir fótunum og gerðu gjarnan fótaæfingar: spenntu kálfana með því að spyrna í hælana og teygja ristarnar til skiptis. Fáðu þér svo stuttan síðdegislúr. (hóst hóst)

Mikilvægt er að fá nægt járn og mæla heilbrigðisyfirvöld með 50-70mg af járni daglega, helst úr fæðu, það sem eftir er meðgöngunnar. Járnrík fæða er t.d. baunir, spínat, steinselja, sveskjur, rúsínur, fíkjur og kjöt. Mjólk, kaffi og te hindra hins vegar upptöku járns í líkamanum. Ef þú tekur járntöflur skaltu vara þig á að skola þeim ekki niður með þessum drykkjum, heldur frekar vatni eða c-vítamínríkum ávaxtasafa sem eykur upptöku járns í líkamanum.

Tvíburarnir: Fóstrin eru nú u.þ.b. 18 sm frá höfði niður á rass og u.þ.b. 22 sm niður á hæl og vega 440-460 grömm hvort. Þau hafa fengið pínulítil augnhár og augabrúnir og heyrnin er orðin svo þroskuð að þau geta þekkt röddina þína. (stop the yelling mom - þurfti aðeins að skamma Alexöndru í morgun, betra að fara að tóna sig niður) Legvatn umlykur fóstrin en það er ekki sama vatnið alla meðgönguna. Þegar fóstrin drekka legvatn, er það frásogað úr þörmunum í blóð þeirra. Blóðið er síað í nýrum fóstranna sem þau pissa svo út í legvatnið aftur. Úrgangsefnin eru aftur á móti flutt úr blóði barnanna í fylgjur þeirra, yfir í þína blóðrás og þú sérð um að útskila þeim. Þess vegna er legvatnið alltaf hreint og því ekki ógeðfellt að börnin drekka legvatnið sem þau hafa pissað áður. (spennandi ekki satt ?? )

Jæja - góða helgi. Mín verður full af veislum og vinnu :)