páskar og eitthvað
ótrúleg frétt..
Muraizak al-Rashidi, faðir Mohammeds, sagði í samtali við dagblaðið að sonur sinn væri of upptekinn við að senda út boðskort til að innsigla hjónabandið. (brúðguminn er 11 ára og kona hans er 10 ára frænka hans!!!!!!!! Fólk er fífl)
Maja búin að eiga rosalega sæta og fullkomna stelpu og hetir hún Karítas Eva. Ég get svarið það að ég er farin að finna barnalyktina hingað norður af öllum þessum börnum sem hafa verið að fæðast sl. mánuði.
Er að komast í páskafrí en það eru alveg 2 heilir dagar um helgina sem er lokað í búðinni.. Það er eiginlega bara eins og um jólin ;)
Alexandra fékk frístundarkort fyrir helgina - frítt í sund ma á Króknum. Hún er búin að fara 1x - 2x í sund á dag síðan þá. Mjöööög þægilegt að hún sé orðin 8 ára og má fara sjálf. Fer alltaf með 1-2 vinkonum. Mömmuhjartað hefur nú alltaf smá áhyggjur af því að bara sundlaugavörðurinn er til að fylgjast með - því ekki eru þeir stanslaust að fylgjast með - en þetta er líklega eitt af "hard to let go" tilfinningunni þegar börnin manns stækka.
Þá er að koma að 20. viku
Þú ert nú meira en hálfnuð með meðgönguna þar sem fæstar tvíburameðgöngur ná fullum 40 vikum, vegna þess að flestar tvíburamæður fæða 2-3 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag. Þú hefur örugglega þyngst um 7-10 kíló og finnst þú mikil um þig og jafnvel skelfileg tilhugsun að vera þó bara hálfnuð. Legið er nú komið upp fyrir nafla og þrýstir á önnur líffæri í kviðarholinu. Þú finnur hreyfingar mestallan sólarhringinn þegar tvíburarnir sparka til skiptis eða báðir í einu.(já það er MIKIÐ fjör - var að velta því fyrri mér í gærkvöldi hvort þau væru farin að slást núþegar!!)
Tvíburarnir
Fóstrin eru nú u.þ.b. 16 sm frá höfði niður á rass eða um 22 sm niður á hæl og vega u.þ.b. 350-400 grömm hvort og vaxa hratt. Húðin er enn hrukkótt vegna þess að fitulagið hefur ekki myndast undir henni. Hingað til hafa fóstrin æft stærstu vöðvana með spörkum en nú byrja þau líka á þeim smærri t.d. augunum. Fóstrin vaxa hratt það sem eftir er meðgöngunnar en höfuð þeirra vaxa hægar en þau hafa gert fram að þessu og eru nú um 4,7 sm í þvermál.

<< Home