Fróðleikur
Fannst þetta áhugavert...
*Tvíeggja tvíburar verða til úr tveimur eggjum og tveimur sáðfrumum.
*Eineggja tvíburar verða til úr einu eggi og einni sáðfrumu.
*Eineggja tvíburar eru alltaf af sama kyni og eru mjög líkir.
*Tvíeggja tvíburar geta verið af sama kyni eða strákur og stelpa og eru ekkert líkari en systkini fædd með nokkurra ára millibili.
*Þegar eggið skiptir sér fyrir fjórða dag eftir frjóvgun verða tvíburarnir, þótt eineggja séu, hvor með sína fylgjuna og með algerlega aðskilda belgi, alveg eins og tvíeggja tvíburar.
*Þegar það skiptir sér á fjórða til áttunda degi verða tvíburarnir með sameiginlega fylgju og æðabelg en hvor í sínum vatnsbelgnum - ÞETTA ER ÉG.
*Þegar það skiptir sér eftir áttunda dag eru þeir líka í sama vatnsbelgnum, geta með öðrum orðum snert hvorn annan og flækt saman naflastrengjunum.
*Þegar eggið skiptir sér eftir tólfta dag verða börnin síamstvíburar.
Því seinna sem eggið skiptir sér, því hættulegri er meðgangan fyrir móður og börn. Tvíburar í sama vatnsbelgnum fæðast alltaf töluvert fyrir tímann (í kring um 32 vikur). Tvíburar eru ekki í eðli sínu minni en önnur börn. Ástæðan fyrir því að tvíburar fæðast oft litlir er að meðal meðgöngulengd þeirra er 36-37 vikur en ekki 40eins og hjá einburum. Þrengsli á síðasta þriðjungi meðgöngu geta hægt örlítið á vexti tvíbura en það munar innan við einni mörk á meðalfæðingarþyngd miðað við meðgöngulengd þrátt fyrir það. Skörunin á meðalþyngd einbura og tvíbura er svo mikil að það er ekki hægt að alhæfa neitt út frá fæðingarþyngdinni.
Tvíburar eru sem sagt ekki sjáanlega minni en önnur börn fædd eftir sömu meðgöngulengd og, eins og önnur börn, ná þeir þessum vikum upp á fyrstu mánuðum lífs síns.
Maður getur allaf á sig fróðleik bætt - er það ekki?

<< Home