Magnað

Monday, April 07, 2008

Hvað þarf..?

Já nú finnst mér ég þurfa að skipuleggja!
Hvað þarf maður að hafa til staðar þegar barn fæðist og hvað þá tvö.
Hafði nú hugsað mér að kaupa allt sem maður þarf að nota í lengri tíma en spurning um að reyna að af á annað lánað. Það er ekkert spennandi að eiga tvennt af öllu sem er bara notað í nokkra mánuði eða jafnvel vikur.

Vöggur - langar að hafa þær í litlum vöggum til að byrja með þar sem þær verða svo litlar. Á enga..
Rúm - á eitt og fæ eitt lánað :)
barnabílstóla - á einn sem er of gamall :(
Skiptiborð - á það og þarf bara eitt!
Skiptitaska - á hana
Vagn - kaupi hann

Hvað þarf maður annað, þá annað en föt oþh. Barnapíu græju. Anyhú - á ekkert annað. Átti göngugrind sem ég lánaði. Það endaði svo með því að hún keypti hana af mér þar sem það fæddust alltaf fleiri og fleiri börn í famelíuna og ég hafði engin not fyrir hana þá. Pelahitara - pottþétt. Miðað við síðustu mjólkurframleiðslu þá á ég ekki nóg fyrir tvær. Átti ekki nóg fyrir Alexöndru þegar hún var pínupons!

Þið nýjustu mömmurnar hljótið að vita hvað er "must-have" í dag.