Fréttir og röfl.
Komin heim eftir 4/5 daga ferðalag á suðurland - aðallega Keflavík. Nýja e-visa kortið fékk aðeins að finna fyrir því :) Keypti Emmaljunga tvíbura kerruvagn, 2 letistóla og slatta á Alexöndru. Gafst endanlega upp á helv*** Línunni þegar ég fékk svar að stólarnir sem ég pantaði fyrir rúmum 3 mánuðum kæmu ekki fyrr en í fyrsta lagi í lok júli - já LOK JÚLÍ. Hvað er að þessu liði. Þetta er í 2. skiptið sem ég reyni að kaupa stóla af þeim (í stíl við einmanna sófann) en nei.. Fór því og skilaði inn gjafabréfunum og fékk innágreiðsluna endurgreidda. Sagði bara að ég væri komin til að afpanta stóla og fá endurgreitt. Þau spurðu ekki einu sinni af hverju og ég útskýrði ekki neitt. Það var eiginlega eins og þeim væri slétt sama eða bara fegin. Fer aldrei aldrei þangað aftur og mæli eindregið með því að engin fari þangað. Enda búðin minni og ekkert flott þarna inni síðan þau fluttu. Ömurleg sjoppa!!
Anda inn - anda út..
Ég er aðeins búin að vara Alexöndru við því að nú fer að koma að því að það þarf að kaupa fyrir 3 stelpur en ekki bara hana eina. Því fer væntanlega eitthvað að þrengja um hana og hún fær ekki kannski alveg eins mikið og hún hefur fengið síðustu ár. Það verður að koma í ljós hvernig hún höndlar það þegar að því kemur. En eins og ég sagði þá keypti ég slatta á hana í þessari ferð. Kannski til að friða samviskuna þar sem ég er mikið að pæla í því hvað þarf að kaupa fyrir litlu stelpurnar....?
En þetta er vikan sem byrjar á föstudaginn næsta - 24. vikan.
Ég: Nú fer þyngdin að plaga þig og alvanalegt í Danmörku að mæla með því að tvíburamæður hætti að vinna frá þessum tíma, sérstaklega ef konan vinnur líkamlega erfiða vinnu. Legið er á stærð við fótbolta og bumban stendur flott út í loftið en er nú líka orðin nokkuð þung (já hún er pínu þung). Fóstrin þrýsta meira og meira á þvagblöðruna þína svo þér gæti fundist þú endalaust þurfa að pissa (er stundum aaalveg í spreng, fer á klóið og það rétt lekur!!!). Aukin þyngd getur líka valdið sinadráttum í fótum, líka á nóttunni(hef ekki fundið fyrir því). Gerðu teygjuæfingar og passaðu að hafa hátt undir fótunum eins oft og þú getur. Sumar konur fá grindargliðnun á þessu tímabili en aðrar ekki fyrr en seinna á meðgöngunni en flestar losna við hana. (7-9-13)
Margar tvíburamæður kvíða því í byrjun meðgöngu að fara í veikindafrí snemma á meðgöngu, því þær eru hræddar um að leiðast og verða eirðarlausar. Núna þegar þú ert svona langt komin á meðgöngunni, er ekki ólíklegt að þú hlakkir til að vera heimavinnandi tilvonandi tvíburamóðir. Hlakkar til að öðlast tíma og orku til þess að njóta meðgöngunnar án þess að vera feimin við að nota allt í rasshæð sem hvíldarstall og hlakkar til að njóta auka lúrs með góðri samvisku eða geta leitað að tvíburaupplýsingum á netinu eða rætt við aðrar tvíburamæður. Eða bara sofa, borða og sjá og finna lífið aukast í bumbunni sem þú verður aldrei þreytt á að upplifa (þetta hljómar eins og maður eigi bara að leggjast í leti og fitna!!). Nú finna flestar konur fyrir hreyfingum hjá fóstrunum og spörkin fara að verða hluti af hversdeginum.(jeminn, er sko búinn að finna fjörið í örugglega 2 mánuði)
Tvíburarnir: Fóstrin eru nú um 21 sm frá höfði niður á rass, um 28 sm niður á hæl og vega 600-700 grömm hvort. Höfuð þeirra eru 5,5 sm í þvermál. Syngdu fyrir tvíburana þína (NOT, ætla nú ekki að hræða úr þeim líftóruna) eða segðu nöfnin þeirra (iiii.. ekki alveg ákveðin), ef þeir hafa fengið þau. Þú getur byrjað að örva skilningarvit fóstranna og þau að bregðast við – svara rödd þinni. Þrátt fyrir að fóstrin líti þroskalega út, eru lungu þeirra ekki fullþroskuð og þau gætu enn tæplega lifað utan móðurkviðar.(rúmlega 11-13 vikur eftir enn)

<< Home