Brjálað að gera..
Já það er nóg að gera og stutt í að það verði .. já .. minna að gera. Ég nefninlega seldi búðina í dag !! Hætti með hana 1. apríl - en reikna þó með að vera eitthvað að vinna eftir það bara til að klára alla lausa enda.
Þannig að ég er að verða eins og venjuleg mamma - bara í 100% vinnu. Ég held að það verð næs en verulega skrítið. Að vinna ekkert um helgar??? Fá jólafrí eins og venjuleg skrifstofublók??? ok verð í fæðingaorlofi næst en sama. Þetta krefst aðlögunar og þá er bara að finna sér eitthvað gáfulegt og RÓLEGT að gera ;) Guðs bænum ekki láta mig taka upp á einhverri vitleysu.
Ég er búin að vera með leiðindar verki undir rifbeinum og niður á magann með hliðunum - nú í 3 daga. Fór aðeins í tékk áðan bara til að vera viss. Það er sko allt í lagi með stelpurnar en líklega þarf ég að fara að passa mig aðeins betur. Þrístingurinn er í lagi, vottar aðeins fyrir próteini. Ljósan ráðlagði mér að taka paratabs (tók 2) og nú get ég setið við tölvuna í staðin fyrir að liggja grafkjurr uppi í rúmmi því allt annað er vont... Þetta eru líklega einhverjar bólgur undir rifbeinum þar sem stækkunin er nokkuð hröð þessa dagana. Ég var eiginlega ekki með bumbu fyrri 2-3 vikum en herre gud hvað hún stækkar hratt núna!! skv mælingu er hún eins og ég væri komin 25 vikur með eitt en er bara komin 20. Þokkalega verð ég gáfuleg þegar líður enn meira á ef þetta er staðan núna. Ég er amk ekki með grindargliðnun..

<< Home