Hvar endar þetta?
Hvar endar þetta krepputal? Krónan er að drukkna.. æi ég nenni ekki að skrifa um þetta!
Núna um helgina bökuðum við Gaui 3 smáköku tegundir - erum smá saman að komast í jólafílinginn. Erum aðeins búin að skoða jólaskraut. Djöfull er þetta dýrt sem eitthvað er varið í!! Okkur langaði í eitthvað ljós í gluggana, eitthvað annað en við erum búin að vera með (seríur hringinn) eitthvað einfalt og flott. En nei - eitthvað einfalt og flott myndi kosta ca 35 þúsund í 5-6 glugga. Ein helv.. LED stjarna í hvern glugga. Kannski þarf maður að venjast nýju verðlagi? En þá þarf maður að sjá hærri launaseðla og ekki er það raunhæft... djö. farin að tala um kreppuna!
En jólin aftur. Við erum að spá í að vera í Kef á aðfangadag. Síðustu 27 ár hef ég verið í Tröð, síðust 11 ár höfum við Gaui verið saman í Tröð, öll árin 32 hef ég verið með mömmu og pabba. Það á nú að fara að breytast

svona hefur þetta verið undanfarið -pabbi les á pakkana og Alexandra hleypur með þá á rétta staði og aðstoðar svo að opna... eða er að deyja úr spenningi!!
Svo er maður alveg búin á því..

<< Home