Magnað

Friday, August 22, 2008

Flutningur

Já ætli það sé ekki hægt að segja það að flutningarnir séu á lokastigi. Þetta er nú búið að taka ansi langan tíma með ýmsum stoppum með búslóðina. Það er svona nánast allt komið inn og allt á hvolfi... það á eftir að koma ÖLLU fyrir svo við verðum amk eina nótt í viðbót hjá tengdó. Svo er nú eitt - í gær fengum við tölvupóst um það að straumbreytar fyrir ísskápana kæmu ekki til landsins fyrr en eftir helgi svo það er ekki hægt að stinga honum í samband! Já takk - hvernig á maður að fúnkera án ískaps í dag og með 3 börn - þau minnstu á þurrmjólk sem þarf að vera í ísskáp???? Jæja báðar að kalla á mömmu...