Magnað

Friday, August 29, 2008

..

Litlu stelpurnar eru bara flottar. Fá að drekka 1-3x á nóttu, oftast 2x og sofa að mestu þess á milli. Ég er bara á fullu að koma okkur fyrir - gengur svaaaakalega hægt. Datt í smá kaupæði um daginn.. Neitaði að búa án uppþvottavélar svo við Gaui fórum í búð og báðum um ódýra vél. Fengum B-vél (sýningarvél) á 50% afslætti. Bara ánægð með það, svo nú eigum við 2 uppþvottavélar!
Svo áttum við ekkert undir sjónvarpið þar sem "sjónvarpsskápurinn" okkar er steyptur við húsið okkar. Það var full erfitt að taka hann með. Eftir leiðinlegt IKEA brölt og "varan er í pöntun" fíling fórum við í HEIMA verslunina og keyptum þar þennan fína flotta skáp.Nú kaupæðinu var ekki lokið alveg. Þvottavéladruslan mín átti það til að losa ekki vatnið og ég nennti ekki að brasa í þessu. Hún tók upp á þessu á 2. vélinni eftir innflutning. Eftir bras í 4 klst keyrði ég í miðbæinn (Kef) og keypti dýrustu AEG vélina í búðinni... maður verður nú að halda geðheilsunni í fæðingarorlofinu, er það ekki?