Ikea smíkea...drasl
Já nú bætist ég í hóp þeirra mörgu sem hafa útúðað IKEA. Eins fín og flott þessi búð á að vera er nánast allt sem mig langar að kaupa með miðanum "Vara er í pöntun" og belive you me það eru ekki bara 1-2 vörur. Ég fór fyrir rúmri viku til að kaupa kommóðu. Þarf svona með 3 skúffum fyrir fötin mín, inn í þessa fáránlegu fataskápa sem eru allir bara með stöng. Well, ætlaði að vera agalega séð og kaupa ódýrt. Nei allt uppselt. Þá ákvað ég að kaupa svona í stíl við aðra sem ég á stærri. Nóp - líka í pöntun. Svo ég spyr hvenær hún komi - eftir 2 vikur. ohhh æði, hef fötin bara í ferðatösku áfram, bara búin að vera þar síðan 21. júní frá því að ég var lögð inn.... Jæja ég fór aftur í dag en samkvæmt fyrri upplýsingum átti kommóðan að koma nú í vikunni, svo ég spyr - já hún kemur eftir svona 3 vikur. HVAÐ??????????? Frábært, var búin að tæma ferðatöskuna með fötunum mínum þar sem ég var að skila tengdó þeirra töskum. Gott að tæma sem mest og kommóðan hvort sem er að koma í vikunni. NOT! Svo nú eru fötin mín á gólfinu - fyrir utan þau sem ég hef hengt upp. Ætli ég reyni ekki að hengja upp nærfötin á morgun - svona í tilefni dagsins???

<< Home