Magnað

Wednesday, August 06, 2008

Fréttir

já það er svo sem ekkert að frétta. Hvað á maður að blogga um þegar dagarnir eru nánast allir eins?? Alexandra vill fara að leika við einhvern, Gaui er að vinna að undirbúningi fyrir Króksmót, Rakel Eva og Sóley Eva sofa, drekka og prumpa, (og já ropa - þurfti aðeins að bregða mér í það - fékk ælu ropann á milli brjóstanna - næss). Ég sé svo til þess að allir borði, ropi og séu í hreinum fötum...þau geta sjálf séð um prump hlutann.
Sjáið hvað maður verður sýrður á þessu ?? Ég er samt alls ekki að nenna miklu rápi - litlu stelpurnar mega ekki vera á neinu rápi enn sem komið er. Bíð eftir því að geta farið í göngutúr í flotta tvíburavagninum - eðal kerra :)
Það leiðinlegasta í heimi við þetta allt saman er að pumpa - mikið agalega er það leiðinlegt!! En mikið agalega er það gott að vera í Tröð þar sem amman og afinn eru - tala nú ekki um þar sem þær eru tvær, þegar Gaui er ekki heim og það þarf að sinna báðum í einu. Sjæs - talandi um það, þau eru að fara í ferðalag í 2 daga og Gaui verður á kafi í vinnu. Hands up baby :O