Magnað

Thursday, May 29, 2008

Blöðruselur...

Ég horfði á hendurnar á mér einn morguninn og hugsaði: nú veit ég hvernig blöðruselur lítur út.... Já bjúg á höndum er það sem böggar mig þessa dagana. Feitir puttar eru ekki alveg bjútifol.
Bumban er eins og spjót segja sumir - bara beint útí loftið!!


Þarna eru 27 vikur og 3 dagar en á morgun verða komnar 29 vikur svo ég er enn stærri en þetta.
Af vefnum - Tvíburarnir: Börnin eru nú um 27 sm frá höfði niður á rass, 36 sm niður á hæl og vega um 1300-1400 grömm hvort. Tvíburar vaxa eins og einburar fram að þessari viku en héðan í frá vaxa þau aðeins minna en einburar. Börnin geta nú æft sig í að fókusa. Augnabrúnir og augnhár eru nú fullþroskuð. Fósturhár sem hafa þakið tvíburana, byrja nú að detta af. Tvíburarnir sjúga oft á sér þumlana.

Ég fór í sónar á mánudaginn. Önnur stelpan er orðin tæpar 6 merkur og hin tæpar 5 eða samtals 10,5. Það var frekar fyndið að sjá að önnur var með hiksta.. En það er nóg vatn á þeim báðum og því mikið fjör og mikið af hreyfingum. Mikið..

Ég er að hætta í vinnunni. Þetta er eiginlega síðasti dagurinn en kem aaaaðeins við á morgun. Ótrúlegt hvað það dregur hratt á mann núna og er eiginlega komin tími til að leggja sig og klukkan bara 11.30!!

Um daginn fékk ég svona líka flottan poka frá Fríðu vinkonu. Fullur af litlum stelpufötum og tilheyrandi. THANKS :) En ég verð að segja ykkur eitt... í pokanum var meðal annars 3 stk af lökum á dýnur í vöggu. Frábært en mig vantaði einmitt þannig og var ekkert farin að spá í þau. Ég er með þau svona samanbrotin á rúmin ásamt mörgum hrúum af fötum. Nema hvað ... Hér kemur lítil saga.
Gaui bendir á þennan bunka og segir: hvað er þetta??
Ég tek upp eitt lakið og sýni - svona lak á vöggudýnu.
G: Núúú .. ég var að spá í hvaða risa stærð væri orðin á brókunum.
A: Með risastóran spurningarsvip. Hvað meinaru????????
G: Ég hélt að þetta væru brækur á þig.
A: Með ENN stæri spurningarsvip .. WHAT???? hvað heldur þú að ég sé? 1 tonn? (sko ég á ekki einusinni bumbubrók og hef aaaldrei farið í svoleiðis svo ég var bara ekki að fatta þetta)
G: Neeeeeei ég bara hélt..
A: Hélst hvað? ojjj hver helduru að fari að lána brækur af sjálfum sér. Og hver helduru að fari í brækur af öðrum. (ég stóð alveg á gati og er enn móðguð)

Já ég er pínu huges og kallinn heldur að ég þurfi brækur jafn stórar og teygjulak á vöggurúmin.. Blöðruselur hvað??