Er ekki lágmarkið að blogga amk 2x í mánuði??
Mér finnst það! Þegar maður er nánast tölvulaus í 5 vikur dettur maður aaaaalveg úr sambandi og ég verð amk 5 vikur að komast aftur í gírinn.. bæði það að blogga sjálfur og skoða annara manna blogg - já og commenta!!
Við erum öll komin í sveitina til mömmu og pabba. Litlu stelpurnar mínar sofa og sofa og drekka og eru endalaust sætar og pínu fyndnar inn á milli. Við ætlum að skíra á sunnudaginn næsta - nöfnin verða ekki surprize nema við skiptum um nöfn hahaha. Mikið væri það ekki fyndið. Svo erum við komin með barnalandssíðu :) ótrúlega dugleg. Hóst. Takk Maja ;) http://barnaland.is/barn/76203/
Það er víst komið að gjafa tíma svo best að fara að bretta upp ermarnar.

<< Home