Tvíburarnir mínir ;)
Já ég er á lífi og litlu sætu nýju ponsu stelpurnar mínar eru bara ÆÐI!!
Þar sem ég hef ekki mikinn tíma núna kemur langa sagan síðar (líklega. Föstudaginn 20. júní fór ég í skoðun á Króknum og var ekki hleypt aftur út af sjúkrahúsinu.... Eftir að hafa talað við lækni á Akureyri var ákveðið að senda mig suður svo mér var keyrt suður í sjúkrabíl. Á mánudeginum 23. júní kl 12.30 var ákveðið að skella mér í keisara komin 32 vikur +2 daga. Ég hringdi í Gaua sem hafði farið norður kvöldið áður og hann brunaði af stað. Rakel Eva fæddist kl. 15.32 og var 1550 gr (6 merkur + 50 gr) og 39 cm. Sóley Eva fæddist mínútu síðar og var 1840 gr (7 merkur + 90gr) og 41 cm.
Sóley Eva og Rakel Eva
Rakel Eva og Sóley Eva

<< Home