Roðn
Fékk þessar línur sendar í tölvupósti - ég er nokkuð sammála þessu.
Þú verður að hlæja alla daga og sjá spaugilegar hliðar á öllum hlutum.
Þú verður að eiga þér draum. Ef þú átt þér ekki draum þá áttu ekkert líf.
Það eru svo margir lifandi dauðu lífi en fatta það ekki. Það er engin
gleði, enginn draumur. Engin tilbreyting.
Ég á þann draum að verða rík þannig að ég geti gert það sem mig langar með fjölskyldunni - fara til sólarlanda, í helgarferð með kallinum / vinkonum, byggja hús - draumahúsið, og vera sem mest með famelíunni.
Sjæt hvað ég er í mikilli klípu núna....
Alexandra sagði um daginn: "mamma ég skil ekki hvernig ég varð til"
Ég "hvað meinaru"
A "hvernig varð ég til í maganum þínum"
Ég "sko þú manst hvernig konur eru með leg (útskýrði það þegar ég var ólétt) og í því eru egg sem frjóvgast og þá stækkar barn"
A "en hvernig frjóvgast eggið"
Ég (how did I not see this coming....?) "uuuu viltu rétta mér naglaklippurnar???"
--------smá þögn --------
A "En mamma, hvernig geta pabbarnir verið pabbar ef þeir koma ekki nálægt því að búa til barnið"
Ég "............viltu láta naglaklippurnar aftur í skúffuna"
Svo nokkrum dögum seinna
A "Mamma ég skil ekki enn hvernig ég varð til"
Ég (ætlaði sko ekki að fara út í frjóvgaða eggið aftur..vorum bara tvær að keyra á Reykjanesbrautinni) "sjáðu stóra bílinn með risa skiltið í eftirdragi????"
A "mamma ertu að reyna að láta mig hætta að hugsa um þetta??"
Ég (roðn, hóst og eitthvað fleira - hringdi í Gaua og sagði eiginlega ekki neitt, en hún hætti að spyrja í bili.
Verð að fara að nálgast bók með myndrænum lýsingum svo ég þurfi ekki að lýsa þessu með orðum...... Af hverju er hún orðin svona stór?????????

<< Home