Magnað

Monday, December 15, 2008

Jólin nálgast

Jiminn hvað ég verð fegin þegar Gaui er búin í prófunum!!! Hann er akkúrat núna í síðasta. Svo á föstudaginn er Alexandra líka komin í jólafrí - vúhú. Hún stóra mín er alveg handfylli þessa dagana. Vonandi lagast þetta allt í jólafríinu en hún þarf svolítið mikla athygli þessa dagana. Hún var að skrifa niður jólagjafalista foreldranna um daginn. Eitt frá pabbanum er: púma peisa sem er íðrótta. Hún er dásemd þessi elska.

Það verður nóg að gera í þessari viku. Á morgun eigum við Gaui barnafrí!! Tengdó ætlar að passa allan daginn svo við förum alein í bæinn að klára jólagjafir og eitthvað snatt. Á miðvikudaginn er hittingur hjá Maju - vúhú. Fimmtudagur er ferð á Barnaspítalann. Föstudaginn er síðasti skóladagur, klipping og margt fleira. Laugardagur jólaboð í Rvík ...... Ég sé það að ég verð svolítið í borginni næstu daga.

Jæja farin að sinna gríslingum!