Magnað

Tuesday, December 09, 2008

skólinn

Já skólinn hennar Alexöndru.. hún kom heim í dag eftir skóla og var ekkert sérstaklega ánægð. Henni var illt í öxlinni eftir að einhver strákur lamdi hana! Þegar ég var á þessum aldri lömdu strákar stráka en stríddu stelpum. Ok svo sagði hún að það hefði næstum kviknað í skólanum rétt hjá sér.. kennarinn var með kerti á borðinu og var Alexandra að lesa fyrir hana. Þá kom strákur (auðvitað) og skellti kertinu um koll. Ekki kannski mikil íkveikju hætta en dóttirin er stundum svolítið dramantísk. En það versta var (og ég hef ekki fengið þetta staðfest) að einn bekkjabróðir hennar kom hágrátandi inn í tíma eftir frímínútur en þá hafði einhver strákur í 4-5. bekk ógnað honum með vasahníf!!! Kennarinn sem var úti með þeim sá hnífinn og tók hann af krakka asnanum. HVAÐ ER AÐ?
Guði sé lof að Alexandra verður bara 1 ár hér í skóla - norðurlandið er öruggara!!