Magnað

Thursday, January 15, 2009

Nýtt ár

Líklega er ég orðin of sein til að óska ykkur gleðilegra jóla...
Kl 10:30 á aðfangadagskvöld ákváðum við Gaui að best væri að drífa okkur norður strax. Stelpurnar sofa alla leið, flott veður og ENGIN umferð. Daginn eftir átti sko að vera vont veður. Kl 2 um nóttina vorum við í Borgafirðinum og Alexandra byrjaði að æla - já hún fékk ælupestina. Sweet, hún dreif fram á mælaborð og angaði bíllinn í marga marga dag þrátt fyrir mikil þrif. Sem betur fer komumst við í Tröð áður en niðurgangurinn hófst. Rakel Eva veiktist líka. 30. des byrjaði annað augað á Sóleyju Evu að bólgna. Ég hrindi í lækni á gamlárs og fékk eitthvað bakteríu dropa sem virkuð ekki neitt. 2 dögum síðar var augað orðið stokkbólgið svo við brunum til læknis. Fengum aðra dropa. 2 dögum síðar fékk Gaui í annað augað og 2 dögum síðar fékk ég í annað augað. Til að gera langa sögu stutta fengum við öll í augun. Sóley og Alexandra bara í annað en við hin í bæði. Í gær (loksins)kom niðurstaða úr rannsókn að við værum með adeno vírus og erum nú með steradropa (2 teg). Alexandra er orðin nokkuð góð en hún slapp lang best. Sóley er nánast alveg góð en hún byrjaði og fékk bara í annað. Rakel greyið fékk í bæði (meira þó í annað) og opnar ekki augun fyrr en eftir hádegi - þó hún vaki. Nú er dagur dagur 10 hjá mér og fókusinn ekkert sérstaklega góður ennþá. Annað augnlokið fjólublátt og hitt bleik/rautt. Roðinn í augunum sjálfum er að minnka. Fyrir vikið erum við búin að vera í einangrun og Gaui greyið alveg að flippa út. Við höfum lítið gert annað en að komast í gegn um daginn með tár í augum og leppi fyrir sumum!!