27 dresses eða...
27 marblettir. Já takk fyrir. Ég taldi marblettina á mér í gærkvöldi og sá samtals 27 stykki. Mér finnst það of mikið. Reyndar eru margir litlir og fara fljótlega. Samt. Helmingur er nálægt hnjánum en þegar ég burðast með bílstólana (og stelpurnar í) á ég það til að nota fæturnar sem stuðara. Greinilega ekki sniðugt!
Lillurnar mínar eru svo miklar snúllur. Stækka og stækka og brosa mikið.
Stóran mín fékk lyf um daginn sem á að hjálpa henni að sofna. Það hjálpar eitthvað en er ekki að rota hana. Hún verður samt svolítið rugluð ef hún er að vakna fyrri hluta nætur. Td í gærkvöldi vaknaði hún á milli 11-12 og kom yfir til okkar. Hún byrjaði á að segja: pabbi? og hann svaraði: já. (hún spyr alltaf pabba sinn hvort hún megi koma upp í því hún veit að ég segi nei og hann stundum já!!) Svo sagði hún: humfi aminaemdnudga dudo idka (og slatta í viðbót).... amk eitthvað sem var algjörlega óskiljanlegt. Ég leit á Gaua og sá svolítin skelfinga svip. Hún var dökk í kring um augun og ruglaði bara. Ég fór með hana yfir í sitt rúm og fór svo aftur upp í mitt. Gaui varð pínu skelkaður á þessu og sagði að það væri eins og hún hefði verið andsetin, með skrítin augu og talaði geimversku!!!!

<< Home