Magnað

Tuesday, April 29, 2008

Skoðun í gær

Ég fór í skoðun í gær á Akureyri. Það er sko allt í orden. Önnur er aðeins stærri en hin en það var líka þannig síðast. Þær eru báðar innan marka og svo lengi sem þær halda sinni kúrfu þá er allt í lagi. 4 vikur í næstu skoðun. Það tókst í 7. eða 8. tilraun að mæla blóðflæði í naflastrengnum hjá minni dömunni. Hún var alltaf að færa sig úr stað svo það náðist ekki nógu löng mæling. En mælingin kom vel út. Það var ekki hægt hjá hinni þar sem hún var non-stop.... ekki sjéns að mæla! En á meðan hreyfingar eru svona miklar þá er flæðið gott. Það er nóg legvatn svo þær hafa enn nægt pláss til að snúa sér og hreyfa sig. Síðast voru þær með hausana saman en nú eru þær með haus - fætur saman... Á sunnudagsmorguninn (þegar maður á að sofa út) vaknaði ég við hreyfingar um kl. 8. það var greinilega mikið að gera hjá þeim og ekki sjéns fyrir mig að sofna. Fæ á tilfinninguna að þær séu að undirbúa mig ???

Ég er eiginlega búin að ákveða að vera fyrir sunnan hjá Gaua í vetur. Þá leigjum við nemendaíbúð á vellinum (sem Keilir er með). Æi það hljómar betur að hafa hann nálægt heldur en að hafa hann á ferðinni allar helgar í allan vetur. Fyrir utan það sem hann myndi missa af!