Stækka hratt!!!
Æi hvað er að frétta?? Ég er aðeins að venjast því að vera bara í "venjulegri" vinnu. Aaaagalega gott td að vera í fríi í gær sumardaginn fyrsta. So sweet ;)
Svo er bara helgarfrí framundan - more so sweet..
Gaui fór suður í morgun en það er próf hjá honum í fyrramálið. Engin öfund hjá mér þar!!
En mikið svakalega stækkar bumban hratt jeminn. Mér finnst ég stundum vera að springa og fæ ekkert svakalega mikinn tíma til að aðlagst þar sem þetta gerist hratt hratt hratt. Það er að koma sá tími sem ég "hlunkast" í sætið og upp í rúm. Ekki kannski eftirsótt en fylgir. Mynd verður vonandi tekin um helgina og stefni á að koma henni hér inn. Flestir segja bara "vááááá" þegar þeir sjá mig með viku millibili td. Ein í vinnunni hjá mér segist sjá mun á mér fyrir og eftir hádegi!!!!!!
Ég: Líkami þinn og hormónar undirbúa sig nú fyrir fæðinguna. Hjá sumum konum lekur broddmjólk úr brjóstunum seinni hluta meðgöngunnar en aðrar geta ekki kreist einn dropa úr brjóstunum.
Mál frá lífbeini upp á legbotn (legbotnshæð) er um 28-30 sm (27 sm við 23+5 svo ég er ósköp eðlileg...) þó svo að þú sért aðeins 24 vikur gengin. Ef þú gengir með eitt barn, hefði þessi legbotnshæð gefið til kynna að þú værir komin 30 vikur á leið. Legið þrýstir nú á öll kviðar- og brjóstholslíffæri. Þörmunum er ýtt út til hliðanna, maganum er ýtt upp og lungunum er þrýst saman. Þú verður fljótt södd þegar þú borðar vegna þess að maginn er undir þrýstingi en þú verður svöng fljótt aftur. Líkami þinn er undir álagi, þú andar ört og t.d. þegar þú talar í símann virkar þú móð.
Tvíburarnir: Börnin eru nú um 22 sm frá höfði niður á rass, um 30 sm niður á hæl og vega um 700-750 grömm hvort. Beinin eru að verða harðari og þegar börnin hreyfa sig bungar maginn á þér út. Börnin eru „aktíf“ í lengri tíma og þér finnst þú finna spörk út um allt – alltaf. (ó men það er svo mikið að gera hjá þeim!!)

<< Home