myndir ofl
Já hér koma bumbumyndir. Sú fyrri er tekin 21+2 vikur og seinni 24+2.... stækkar hratt ekki satt?
.jpg)
21+2
.jpg)
24+2
Núna eru komnar 25+3 og í fyrsta skipti í kvöld varð ég pííínu leið á bumbunni. Það er orðið þreytandi að koma sér þægilega fyrir í rúminu og gjörsamlega vonlaust að liggja á bakinu nema smástund.
Eeeeen ég var í dekur ferð í borginni síðustu helgi með saumaklúbbnum. Við stelpurnar fórum í Nordica spa sem var bara æði. Meðgöngunudd og lúxus andlitsbað varð fyrir valinu. Mig langaði helst að taka bekkinn með mér heim þar sem það var bæði hola fyrir bumbu og brjóstin. Svooo þægilegt að liggja á maganum aftur. Svo sofnaði ég í andlitsbaðs nuddinu. Sjæs var næstum því farin að hrjóta. En ég þurfti að vera svona hálf sitjandi þar sem ekki er hægt að liggja á maganum eða hliðum í andlitsbaði. Svo fórum við út að borða og á Ladda showið. Laddi er æði - hann er bara æði. Hann er uppáhaldið af íslenskum leikurum. Félagsskapurinn var líka æði og mjög góð helgi að baki. Myndi alveg meika næstu svona líka ;)

<< Home