Magnað

Monday, May 19, 2008

vinkona mín

Nú er búið að taka þriðju bumbumyndina, 3 vikum síðar. Hún kemur inn fljótlega til samanburðar, kannski með fyrirvara um "bannað innan 18 og fyrir viðkvæma" sjæsi mér finnst svo mikill munur alltaf!!

En hún Jolie vinkona mín á von á sér 3 dögum á eftir mér og með tvíbura. Við erum svo tight hahahaha! Þarf að hringja í hana og spurja hvort þetta séu líka 2 stelpur hjá henni...

Í síðustu viku byrjaði ég að vinna bara fyrir hádegi. Ótrúlegt hvað það dregur fljótt á mann en í þar seinustu viku var ég hin spertasta og eiturhress. Kannski vita þessir læknar og ljósur hvað þeir tala um þegar sagt er að ég eigi ekki að búast við því að vinna mikið þegar ég er komin 28 vikur - og það er núna næstu helgi!!! Eftir hádegismat legst ég upp í lazy stól og horfi á eitthvað og sofna oftast.....ég er alls ekki vön að sofna á daginn..
Ég stefni þó að því að klára mánuðinn fyrir hádegi (rosa harka maður!!) en fer svo í frí. Mæðraskoðun í vikunni og Akureyri í næstu viku.